Friday, October 04, 2002

Jæja góðir félagar, ekki hef ég nennt að blogga í langan tíma. Hins vegar fór um mig óþægileg tilfinning þegar Jói Þórs lækkaði mig um tign í tenglasafninu. Þetta þýddi að annaðhvort þyrfti ég að loka síðunni og hætta að blogga alveg (sem hefði verið viturlegt eða byrja aftur). Auk þess hyggst ég keppa stíft við Stefán Pálsson um bloggfrægð. Hann hefur hins vegar mikið forskot á mig þar sem ég hef ekki bloggað mánuðum saman. En nú gerist ég hinn metnaðarfulli bloggari og uppfæri reglulega. Ef þetta tekst ekki að þá hætti ég í blogginu.

Á morgun fer ég norður til Akureyrar. Það verður gaman. Ætli maður hitti ekki geirafrænda og Willy motherfucking Stebba. Alltaf er gott að fara norður, loftið er svo heilnæmt.

Ég ætla líka að uppfæra tenglasafnið mitt í dag.

Saturday, August 31, 2002

Helvítis Lomborg
Scientific American segir um bók Lomborgs: "The errors described here, however, show that in its purpose of describing the real state of the world, the book is a failure."

Það gat þá ekki verið að Mogginn myndi birta grein eftir Björn Lomborg í tilefni af umhverfisráðstefnunni í Jóhannesarborg.

Wednesday, August 28, 2002

Smart spæjari er ekki lengur góður, ef hann var það nokkurn tímann.
Bloggið fær ekki mikinn tíma. Siv fékk ekki mikinn tíma hjá mér þegar hún var í Kastljósinu. Ég slökkti á henni og ég nenni ekki að lesa bloggið hennar.

Friday, August 23, 2002

Egg og beikon í hádegismat boðar gott.
Ég ætla að hætta með fyrirsagnar, þær hægja á blogghugmyndum.

Um daginn skoðaði ég þriggja binda verk um ævi Sigmuunds Freuds sem Ármann var að monta sig af. Kaflinn um barndóm og unglingsár Freuds hlýtur að vera áhugaverður:
"Ég hætti á þermisskeiðinu um tveggja ára aldur. Fimm ára var ég hættur að vera skotinn í móður minni sem var of snemmt. Þetta orsakaði spennu milli mín og föður míns og vildi ég myrða hann. Af þeim sökum var ég fullur af kvíða sem unglingur."

Ég fór á Þjóðarbókhlöðuna í gærkvöldi. Það var gaman enda voru afskaplega fáir á hlöðunni. Náði ég mér í nokkrar bækur.

Thursday, August 22, 2002

Kominn í land

Jæja, ég hef ákveðið að byrja að blogga aftur. Sjómennskan var ákaflega skemmtilega eins og alltaf. Fljótlega mun ég segja ykkur toghlerasögur.

Tuesday, June 04, 2002

Kveðja

Ég kveð að sinni, sjáumst eftir mánuð.

Monday, June 03, 2002

Sjómennska

Á morgun fer ég á sjóinn. Ég fer á norðlenska togarann, Akureyrin EA 110 sem Samherji gerir út. Tveir túrar á honum væri frábært. Ég hef áður verið á Akureyrinni og líkaði mjög vel. Hins vegar eru það orðinn nokkur ár síðan. En vonandi þekkir maður eitthvað af mannskapnum. Ég fer kl. 17:00 á morgun, frá Reykjavík.
Melli

Djöfulsins Ísraelsher að handtaka Mella. Nú geta menn velt því fyrir sér hver er glæpamaðurinn í þessum aðstæðum Melli eða Ísraelsher?